Garðarsbraut 83, 640 Húsavík
34.000.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
82 m2
34.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1982
Brunabótamat
44.300.000
Fasteignamat
28.700.000

Lögeign kynnir eignina Garðarsbraut 83, 640 Húsavík.

Eignin Garðarsbraut 83 íbúð 201 er mikið endurnýjuð 78,1 m2 þriggja herberga íbúð. Farið var í miklar framkvæmdir á eignini fyrir um fimm árum, og var þá m.a. skipt um eldhúsinnréttingu, allt góflefni og allar hurðar auk þess sem baðherbergi var endurnýjað frá grunni. 

Nánari lýsing eignar

Forstofa er með nýlegum hvítum fataskáp. Forstofa er í miðju íbúðar og tengir saman önnur rými eignarinnar. 
Eldhús er strax á vinstri hönd frá forstofu. Innrétting er hvít háglans með efri og neðri bekkum og stórum búrskáp. Setubekkur er í innréttingunni með ljósgrárri borðplötu. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingunni og eru þar sérsniðnar skápainnréttingar.
Baðherbergið var allt endurnýjað fyrir um fimm árum á smekklegan hátt. Er það með upphengdu salerni, handklæðaofn og sturtu með glerskilrúmi. 
Stofan er rúmgóð miðað við stærð eignar. Stór gluggi er til vesturs úr stofunni og er útgengi út á svalir. 
Herbergin eru tvö í eigninni. Hjónaherbergið er stórt og er það með fataskáp. 
Skipt var um allt gólfefni árið 2019-20 og voru þá settar parketfísar á eldhús og harðplastparket á stofu og herbergi. Flísar voru settar á baðherbergi og parketklæðning var sett á svalirnar. Á sama tíma var skipt um allar hurðar og settar nýjar hurðir frá versluninni Birgisson. 

Fjöleignarhúsið sjálft er gott að utan þar sem farið hefur verið í miklar framkvæmdir á því á undanförnum árum.
-Skipt var um þakjárn og sett ný einangrun í þak árið 2022
-Húsið var málað og farið í múrviðgerðir að utan sumarið 2022
-Aðgengi að eigninni er gott, stórt bílaplan er framan við eign sem er með bundnu slitlagi. 

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu [email protected].

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.