Vallholtsvegur 7, 640 Húsavík
39.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
5 herb.
110 m2
39.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1958
Brunabótamat
41.800.000
Fasteignamat
29.800.000

Lögeign kynnir eignina Vallholtsvegur 7, 640 Húsavík

Um er að ræða 5 herbergja íbúð á þriðju hæð í þríbýli, Eignin er samtals 110,4 og byggð árið 1958 en árið 1982 var efstu hæðinni breytt, þakinu lyft og íbúðin stækkuð. Eignin er staðsett miðsvæðis og stutt er í alla helstu þjónustu. 


Nánari lýsing: forstofa, gangur, geymsla, fjögur svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og svalir. 
Forstofa: komið er inn um sameiginlegan inngang á jarðhæð, gengið upp stiga þar sem komið er að inngönguhurð inn í íbúðina. 
Gangur: þegar komið er upp stigann tekur við flísalagður gangur, á ganginum eru tvö svefnherbergi, geymsla og baðherbergi. 
Fjögur svefnherbergi: Öll svefnherbergin eru flísalögð og tvö þeirra eru með rúmgóðum fataskápum, útgengt er út á suður svalir úr hjónaherberginu. 
Eldhúsið: er flísalagt og með hvítri innréttingu, flísum á milli efri og neðri skápa, góð tæki og keramik helluborð. 
Baðherbergi: er með hvítri innréttingu, rúmgóðri flísalagðri sturtu og vegghengdu salerni. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara á baðherberginu.

Endurbætur voru á íbúðinni 2008-2009. Skipt var um gólfefni, hurðir, hreinlætis og eldunartæki, eldhúsið endurnýjað og baðherbergið líka. Raflagnir og tengla voru endurnýjaðar að hluta.
- Sumarið 2021 var farið í framkvæmdir að utan þar sem gert var við sprungur utan á húsinu og málað í framhaldinu, einnig voru þakrennur endurnýjaðar. 

Eignaskiptasamningur er til fyrir húsið. Eignarhluti íbúðar skv. eignaskiptasamning  31,9% af heildar stærð hússins.

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf í síma 865-7430 eða netfanginu [email protected] og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf., í síma 835-0070 eða netfanginu [email protected].

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.