Klifagata 2, 670 Kópasker
Tilboð
Fjölbýli
3 herb.
78 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1946
Brunabótamat
32.250.000
Fasteignamat
6.790.000

Lögeign kynnir eignina Klifagata 2, 670 Kópasker, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 216-6904 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Klifagata 2A er 78,7 m2 íbúð í tvíbýlishúsi. Húsið er byggt árið 1946 úr steypu. Eignin samanstendur af anddyri, eldhúsi, stofu, baðherbergi, tveimur svefnherbergjum og geymslu.

Nánari lýsing;

Gengið er inn austan megin í húsinu og er þar malarbílastæði fyrir framan. Gengið er inn í anndyri sem byggt var síðar við húsið úr timbri. Þar eru flísar á gólfi. Lítil geymsla er við forstofu. Úr forstofu er gengið upp þrep inn í hol íbúðar. Eldhús og herbergi eru sunnan megin í íbúðinni. Eldhús er með eldri innréttingu. Baðherbergi er fyrir miðju í holi og er þar tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Baðherbergi var gert upp nýlega á smekklegan hátt. Norðan megin í húsinu er herbergi og stofa. Stórir gluggar eru í stofu og er hún rúmgóð miðað við stærð íbúðar. 
Annað;
- Járn á þaki var endurnýjað fyrir rúmlega 10 árum.
- Nýlegt gólfefni er á stórum hluta íbúðar.
- Rafmagn hefur verið endurnýjað að einhverju leyti. 
- Baðherbergi var endurnýjað að öllu leyti fyrir nokkrum árum.

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson Löggiltur fasteignasali í síma 865-7430 eða netfanginu [email protected] eða Hinrik Lund lgf. í síma 835-0070 eða netfanginu [email protected]

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.