Fiskifjara 1, 640 Húsavík
26.000.000 Kr.
Atvinnuhús
0 herb.
79 m2
26.000.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
2018
Brunabótamat
24.700.000
Fasteignamat
10.250.000

Lögeign kynnir eignina Fiskifjara 1, 640 Húsavík. Nánar tiltekið eign merkt 01-0102.

Um er að ræða vel umgengið 79,8m² iðnaðarbil byggt árið 2018, góð lofthæð er innan eignar og búið er að útbúa milliloft. Aðkoman að eigninni er góð og stór innkeyrsluhurð. Eignin er staðsett á hafnarsvæðinu á Húsavík á lóð sem flokkast sem iðnaðar og athafnarlóð. Fimm bil eru í húsinu og var sérstaklega haft í huga við bygginguna að hafa það eins viðhaldsfrítt og kostur var. 

Nánari lýsing:
Húsið er stálgrindarhús og klætt með yleiningum. Að innan er eignin með lökkuðu gólfi og gólfhiti í gólfum, engir milliveggir eru í rýminu og er því mikið geymslupláss, timburstigi er upp á milliloft sem nýtist undir kaffistofu og snyrtingu.
Lofthæð inní eigninni er mjög góð. 

Annað:
-rafdrifinn innkeyrsluhurð
-sér inngangur 
-eignin lýtur vel út og vel umgengið. 
-rúmgott malarbílastæði er fyrir framan innkeyrsluhurð.

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu [email protected] eða Hinrik Lund lgf. í síma 835-0070 eða netfanginu [email protected]

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.