Höfðavegur 14, 640 Húsavík
Tilboð
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
6 herb.
163 m2
Tilboð
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1938
Brunabótamat
58.950.000
Fasteignamat
34.500.000

Lögeign kynnir eignina Höfðavegur 14, 640 Húsavík.
Höfðavegur 14 er einbýlishús byggt úr steypu árið 1938, samtals stærð eignar er 163,2 M² og þar af er geymsla 40 M². Eignin er staðsett í botnlangagötu og með útsýni yfir höfnina. 
 
Neðri hæð: 
Forstofa, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla.
Forstofa:
 komið er inn í flísalagða forstofu, inn af forstofu er gangur þar sem teppalagður stigi er upp á efri hæð eignarinnar ásamt þremur svefnherbergjum. 
Þrjú svefnherbergi: eitt svefnherbergið er sérlega rúmgott og með fataskáp, hin tvö eru aðeins minni. Tvö svefnherbergi eru með flotuðu gólfi og eitt parketlagt.  
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf, "walk in" sturta, vegghengd salerni, grá innrétting og handklæðaofn. Baðherbergið var endurnýjað árið 2000. 
þvottahús: staðsett á milli herbergisgangs og geymslu. Tengi er fyrir bæði þvottavél og þurrkara. 
Geymsla: er staðsett inn af þvottahúsinu, geymslan er tvískipt og skiptist þannig að inn af þvottahúsinu er upphituð geymsla og inn af henni er innangeng hurð yfir í kalda geymslu. 

Efri hæð: Stofa, eldhús og eitt herbergi.
Stofa og borðstofa: þegar komið er upp stigann þá tekur við stofa, inn af stofu er síðan borðstofa í sér rými. 
Eldhús: er með viðarlitaðri innréttingu og ljósri bekkplötu, innréttingin er upprunanleg en bakarofn hefur verið endurnýjaður. 
Eitt lítið herbergi: staðsett inn af stofunni og með gluggum á tveimur hliðum. 
Gólfefni: Á milli hæða er timburgólf, á stofunni er síðan timburgólf og dúkur á eldhúsinu. 

Að utan: Gróinn garður er í kringum húsið, hellulagt bílastæði er fyrir framan hús ásamt timburskjólveggjum fyrir framan inngang eignarinnar. 
Annað: Þak var endurnýjað árið 2005. 

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf í síma 865-7430 eða netfanginu [email protected] og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf., í síma 835-0070 eða netfanginu [email protected]

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.