Útgarður 2, 640 Húsavík
Tilboð
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
136 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
0
Fasteignamat
22.550.000

Lögeign fasteignasala kynnir eignina Útgarður 2, 640 Húsavík, íbúð 103. 

Eignin Útgarður 2 íbúð 103 er skráð 136.6 fm. þ.á.m. geymsla í kjallara  sem er skráð 9,2 m2 auk þess sem stæði í bílakjallara tilheyrir eigninni og svalir sem verða með svalalokun. Svalir verða 20,6 m2 og er því heildarstærð íbúðar með geymslu 157,2 m2.  Eignin er þriggja íbúð á jarðhæð. Eldhús og stofa verða í opnu rými með útgengi út á svalir.  Svefnherbergin tvö verða við hliðina á hvort öðru en í hjónaherbergi sem er 15,6 m2 verður fataherbergi og snyrting. Baðherbergið verður með sturtu og er þvottahús við hliðina á baðherbergi. 

Útgarður 2, verður steinsteypt fjöleignarhús sem skiptist í þrjár hæðir með 9 íbúðum og kjallara með 9 séreignargeymslum. Lyfta verður í húsinu. Aðkoma að aðalinngang Útgarðs 6 verður frá norðurhlið. Í kjallara er bílastæðahús og er eitt bílastæði þar sérmerkt íbúð 103.

Íbúðir í Útgarð 2 verða afhentar 29. febrúar 2024.


Skilalýsing fyrir Útgarð 2
Sameign:
Lyfta: Fólkslyfta verður tilbúin til notkunar í stigahúsi.
Bílageymsla: Bílageymsla er í kjallara fyrir valdar íbúðir.
Sorpgeymsla: Sorpgeymsla er utanhúss, yfirbyggð með mótaáferð.
Stigagangur verður flísalagður upp að stiga á jarðhæð, teppi þaðan upp á 3 hæð. Veggir sandspartlaðir og málaðir hvítir (málarahvítt).
Frágangur utanhúss:
Klæðning og einangrun: Veggir verða einangraðir að utan og klæddir með málmklæðningu, standandi timburklæðning á útvegg inn á svölum. Þak er einangrað og dúklagt.
Svalir: Svalir eru steinsteyptar með niðurfalli, Svalahandrið er lokað og með handlista, svalaloft eru ómeðhöndluð.
Gluggar: Viðhaldslitlir (tré/ál) gluggar verða settir í.
Lóð: Lóð er fullfrágengin, graslögð og frágengnar gönguleiðir með snjóbræðslu til staðar.
 
Frágangur innanhúss, íbúð 103.
Gólfefni: Gólf eru parketlögð með harðparketi (eik) og gólf í forstofu, baðherbergi og þvottahúsi eru flísalögð.
Veggir: Veggir eru sandspartlaðir og málaðir hvítir (málarahvítt).
Loft: Loft eru sandspörtluð og máluð hvít (málarahvítt). Raflagnir eru í steyptum hæðarskilum.
Sólbekkir: Sólbekkir eru ekki afhentir með.
Hurðir: Hurðar eru yfirfelldar með eikaráferð.
Fataskápar: Fataskápar eru í svefnherbergjum og forstofu, með eikaráferð.
Eldhús: Eldhúsinnrétting verður hvít (hálfmatt) og innbyggður kæliskápur og innbyggð uppþvottavél fylgir íbúð. Gufugleypir með kolasíu fylgir. Ljós verður undir efri skápum. Borðplata verður dökkgrá, plastlögð. Fjölkerfa blástursofn og span helluborð afhentast tilbúið og tengt með íbúð.
Baðherbergi: Gólf verður flísalagt og veggir inn í sturtu upp í ca 220 cm frá gólfi, aðrir veggir málaðir hvítir (málarahvítt). Tengingar fyrir þvottavél eru til staðar. Gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara. Glerskilrúm (föst) verða fyrir sturtuklefa sem er með flísalögðum sturtubotn, hitastýrð blöndunartæki í sturtu. Einnar handar blöndunartæki eru við handlaug í innréttingu. Hvít innrétting (hálfmatt) er undir handlaug og háir skápar við hlið vaskaskáps samkvæmt teikningu arkitekts, borðplata í sama lit og í eldhúsi. Vegghengd salerniskál er á baðherbergi. Handklæðaofnar tengdir við gólfhitakerfi og hitna samkvæmt því.
Sérgeymsla: Sérgeymsla fyrir hverja íbúð er í kjallara hússins, Veggir eru óspartlaðir, málaðir hvítir (málarahvítt) og gólf máluð með grárri gólfmálningu, hurðar í geymslu eru yfirfelldar, hvítar að lit.
Hitakerfi: Gólfhiti er í íbúðum ásamt handklæðaofni á baðherbergjum. Hitastýringar eru á veggjum fyrir hvert kerfi. Forhitari er að neysluvatni.
Loftræsing: Vélræn loftræsing er í rýmum sem reglugerð og teikningar gera ráð fyrir.
Rafmagn, net og lýsing: Rafmagns- og fjarskiptalagnir afhentast frágengnar með einum myndavélasíma í íbúð, í baðherbergi/þvottahúsi og eldhúsi eru rakaheldir kúplar, annars afhentast íbúðir með perustæði í hverju rými.
 
Hönnun og framkvæmd verks
Arkitektateikningar: KrArk – Kristinn Ragnarsson arkitekt
Burðarþol og lagnahönnun: S.Saga ehf.
Raflagnir: Belkod ehf.
Eigandi framkvæmdar: Naustalækur ehf.
Byggingaraðili: Trésmiðjan Rein ehf.
 
Ef breytingar verða frá skilalýsingu að ósk kaupanda, t.d. aðrar innréttingar/tæki/gólfefni eða slíkt skal kaupandi skaffa efni og sjá um uppsetningu/fá verktaka í verkið sjálfur. Ef óskað er eftir því að Trésmiðjan Rein vinni verkið verður það unnið í tímavinnu. Að sama skapi verður þá það efni sem Trésmiðjan Rein á að skaffa samkvæmt skilalýsingu tekið út úr verði eignar og það gert upp í lokagreiðslu. 
 
Gjöld og kostnaður; Kaupendur greiða skipulagsgjald sem er 0,3 % af brunabótamati íbúðar. Gjaldið er lagt á eftir lokaúttekt.
Kaupendum er bent á að kynna sér þau gjöld sem falla til við gerð kaupsamninga, þinglýsingar og lántökur

Verð getur hækkað í samræmi við byggingarvísitölu.

Kvaðir:
Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu sem tilheyrir Útgarði 2 eru eftirfarandi kvaðir á húsinu
Íbúar í Útgarði 6 verða að hafa náð 55 ára aldri.
Skammtímaleiga íbúða í Útgarði 6 er með öllu óheimil.
Bílastæði í bílakjallara verða ávallt að tilheyra íbúðum í matshlutum Útgarðs 2, 4 eða 6. Þau má ekki selja öðrum en þeim sem eiga eignir á lóðinni.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson í síma 865-7430 eða með tölvupóst á netfangið [email protected].

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.